Frí sending af öllum pöntunum innanlands gerðum til 23:00 í dag 2. sept.

Turna síð svört

15,960 kr 39,900 kr
Stærð

Viltu fá tilkynningu þegar varan kemur aftur á lager?

Turna gollurnar eru svakalega klæðilegar og tímalausar opnar peysur sem eru frábærar við allskonar kjóla og toppa. Þær eru vel síðar og ná niður á miðjan kálfa, opnar að framan með vel síðum ermum sem krumpast aðeins fremst.

Turna eru einstaklega tignarlegar og grennandi, teknar inn í mittið með fallegum kraga sem stoppar á miðri leið. Það gefur þessum peysum virkilega töffaralegt yfirbragð en þó eru þær algjör klassík! 

Þær henta sem utanyfirflíkur í léttara veðri en munu einnig koma sér mjög vel í vetur þegar það fer að kólna. Þær eru einfaldar í sniðinu með góðum ermum, opnar að framan með kanti sem rammar hálsmálið fallega og vösum sem falla niður í saum að framan.

Ermarnar eru ísettar og eru því skarpar og flottar.

Stærðir

Þær eru fáanlegar þremur stærðum: XS sem hentar 36/38-40, stærð S 40-42-44 og stærð M 44-46/48. 

Efnislýsing

Blanda: 69%Nylon/26%Rayon/5%Spdx

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með 30°C þvotti og leggið á handklæði til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr