Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Júní- ár dalíunnar

Núið skiptir máli!.. og já, þetta telst líka sem sumar.

Þema júní mánaðar er "núið skiptir máli". Við festumst svo oft í að seinka einhverju þar til eitthvað er svona eða hinsegin. Ég ætla að njóta dagsins þegar veðrið er betra, ég ætla að klæðast þessu þegar ég er svona eða hinsegin. Ég ætla að hitta, upplifa, fara, vera svona, hér, þar eða hvernig sem er ÞEGAR, ÞEGAR, ÞEGAR?

Núið skiptir máli vegna þess að núið er eini staðurinn þar sem lífið gerist í raun!

Við eyðum alltof mikilli orku í að rifja upp það sem mætti betur fara, að undirbúa eitthvað sem gæti gerst eða ekki gerst, að bíða eftir næsta áfanga, eftir því að þetta verkefni klárist, eftir því að sumarið hefjist, næsta fríi eða "þegar ég hef gert þetta eða hitt ÞÁ"!....

Lífið er ekki biðstofa fyrir framtíðina!

Það er okkar að standa uppúr stólnum og lifa því!

Markmiðið

Að æfa okkur í því að vera til staðar í eigin lífi í stað þess að vera alltaf á leiðinni eitthvað annað. Að taka eftir litlu augnablikunum og hægja á.

Að sleppa hugmyndinni um að hamingjan sé handan við hornið heldur virkilega taka eftir öllum góðu atriðunum allt í kring!

Nokkur sniðug verkefni sem mætti gera eða taka eftir:

  • Kaffibolli með vinkonu er ekki tímasóun!
  • Ganga í sólinni (eða hreinsandi rigningunni) þarf ekki tilgang.
  • Blóm í vasa eru ekki verðlaun fyrir afrek.
  • Lífið gerist á milli verkefna, ekki bara þegar þau eru búin. Vegferðin er stærsti hluti ferðalagsins. 
  • Æfum okkur í að vera þar sem fæturnir eru.

Playlisti júní mánaðar.

Ég ákvað að gera íslenskan playlista í þetta skiptið sem heitir "þegar dagarnir lengjast" og lýsingin á honum er svona:

Fíflar við gangbrautir, fellihýsið sótt í geymsluna og undirbúið, sólin hikar en er samt spennt að mæta, blautir hoppukastalar, nýjasti sumardrykkurinn á auglýsingaskiltum, orlofið greitt út, útskriftarathafnir úr leikskólum, pallasmíði, grilllykt, fimmtudagsdrykkur með vinkonum.

Ég sé bara fyrir mér lengri sumarkvöld, puttar í moldinni og undirbúningur fyrir sumarið er í fullum gangi. Þessi listi er hugsaður fyrir labbitúrinn með pods í eyrum eða fyrir drykk á pallinum með vinkonu eða jafnvel í bílnum á leiðinni út úr bænum. Rólegur en samt næs listi fyrir júnímánuð sem telst vissulega líka sem sumar og nú hættum við bara að "bíða" eftir því og byrjum að njóta, hvort sem það er í hreinsandi rigningu eða sólaryl!