Left Halda áfram að versla
Pöntunin þín

Það eru engar vörur í körfunni

Viltu bæta við?
3.700 kr
2.900 kr

Skilmálar

Að versla á vefnum

Afhending vöru

Þegar þú verslar í vefverslun Systra&Maka getur þú valið á milli þess að sækja pöntunina í verslun Systra og Maka næsta virka dag eða fá hana senda. Viðkomandi fær senda staðfestingu í pósti þegar varan fer í sendingu eða er tilbúin til afhendingar í verslun.

Allar pantanir sem á að sækja í verslun og gerðar eru fyrir klukkan 16:00 eru tilbúnar til afhendingar næsta virka dag eftir klukkan 16:00 né annað sé tekið fram. Ef þær eru gerðar eftir 16:00 þá eru þær tilbúnar þar næsta virka dag eftir klukkan 16:00 né annað sé tekið fram.

Við bjóðum upp á sendingar með Dropp og Póstinum. 

Afhendingar á höfuðborgarsvæðinu
Dropp afhendingarstaðir: þá fer sendingin af stað næsta virka dag. 
Heimsending: þá er sendingin send út samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, SMS tilkynningar sendar viðskiptavinum um áætlaðan komutíma. Þægileg leið til að binda sig ekki heima. Ef pantað er eftir hádegi þá fer sendingin næsta virka dag.  Athugið að þetta á einungis við um virka daga. 


Afhendingar utan höfuðborgarsvæðisins
Sendingin afhent á næsta Dropp afhendingarstað: SMS sent þegar sendingin er komin á afhendingarstað. Athugið að þetta á einungis við um virka daga.
Sendingin afhent á næstu Flytjandastöð: SMS sent þegar sendingin er komin á afhendingarstað. Athugið að þetta á einungis við um virka daga.
Samdægurs heimsent á landsbyggðinni: Samdægurs heimsending á suðvestur horni ef pantað er fyrir hádegi, annars næsta virka dag. Athugið að þetta á einungis við um virka daga.


Ef um sendingar út fyrir landsteinana er að ræða geta tollar og gjöld viðkomandi lands bæst við vöruverðið sem er ekki innifalið í verðunum okkar hér á heimasíðunni.

Skilafrestur

Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga að því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem hún kom til þín. Greiðslukvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með ef um vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru.

Endurgreiðsla er gerð á sama kreditkort og kaupin áttu sér stað upphaflega og athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 5 virka daga til að ganga í gegn. Þetta getur verið mismunandi eftir kortafyrirtækjum og getum við því miður ekki haft áhrif á þetta.

Ef pöntuð vara passar ekki er sjálfsagt mál að skipta um stærð eða í aðra vöru svo lengi sem að lagerstaða okkar leyfir. Ef um skipti er að ræða biðjum við þig vinsamlegast að hafa samband við okkur í gegnum systurogmakar@gmail.com

Útsöluvörur sem verslaðar eru á netverslun má skila/skipta innan 14 daga frá kaupum gegn annarri vöru eða inneignarnótu nema annað sé tekið fram.

Ef senda þarf vöru til baka greiðist sá sendingarkostnaður af viðskiptavini.

Afsláttarkóðar eiga ekki við útsöluvörur.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Sala á vörum sem senda á út fyrir landsteinana er gerð án VSK og dregst sú upphæð frá uppgefnu vöruverði hér á netversluninni.

Greiðslumöguleikar

Hægt er að greiða með greiðslukorti og netgiro. Vinsamlega athugið að einnig er hægt að greiða með millifærslu með því að hafa samband við okkur á opnunartíma verslunnar í Reykjavík s: 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com og sama á við um greiðslu með Netgíró en í augnablikinu gengur sú þjónusta aðeins í verslunum Systra og maka eða í gegnum síma.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

Systur og makar áskila sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Upplýsingar um seljanda
Systur og makar ehf
kt: 630414 0320
Síðumúli 21
108 Reykjavík 
s: 5880100
systurogmakar@gmail.com
VSK-númer: 117897

 

Persónuvernd

Systur og makar virða friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína. Með því að heimsækja vefinn okkar lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um persónuvernd og öryggi. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn okkar vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi öryggi og trúnað við meðferð upplýsinga um þig geturðu haft samband við okkur með tölvupósti á systurogmakar@gmail.com

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. 

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf Systra og maka.  Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á systurogmakar@gmail.com 

Neðst á öllum markpósti sem Systur og makar senda á póstlista sinn er einnig hnappur sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna.

Þegar þú pantar vöru í gegnum netverslun Systra og maka geymum við upplýsingar um kreditkortanúmerið þitt aðeins þar til varan hefur verið send frá okkur og greiðslurnar eru frágengnar. Valitor er með PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) löggildingu sem er ætluð að takmarka öll korta fjársvik. Valitor notar AVS (Address Verification Services), CVV2 (Card Verification Value, MasterCard SecureCode, Verified by Visa (VbV) og Payment Application Data Security Standard (PA DSS) for distributed software.

Kortaupplýsingar eru geymdar á öruggum stað á meðan á greiðsluferlinu stendur. Fyrir frekari upplýsingar þjónustu Valitor bendum við á heimasíðu Valitor

Ábyrgðarskilmálar

Ef vara telst gölluð munum við gera við hana eða skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini.  Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.

Við tökum á móti öllum fatnaði sem er framleiddur og/eða seldur af Systrum og vörum til viðgerðar eða breytinga á saumastofu okkar í Síðumúla 21, 108 Reykjavík.

Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að skila henni inn verslun Systra og maka eða á saumastofuna ásamt kvittun til staðfestingar á kaupunum. Við leggjum áherslu á að vörur séu hreinar áður en komið er með þær í viðgerð, óhreinar vörur/flíkur eru endursendar án viðgerðar.