Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Miðsumarsvaka 2021- Gleym mér ei.

Hugmyndir eru hættulegar!

Ég fékk símtal frá góðri vinkonu um daginn, Eirný Sigurðardóttur, þar sem hún sagðist hafa haldið fyrirlesur fyrir nokkru sem bar heitið: „Hugmyndir eru hættulegar“ svo bætti hún við: „Katla, þú hefðir átt að mæta“!

Já það er kannski satt, þetta byrjaði sossum sem ósköp lítil, einföld og sakleysisleg hugdetta okkar hjóna þar sem við vildum bjóða gestum og gangandi í opið hús á 17. júní og kannski taka aðeins til í geymslu og bílskúr um leið með því að halda loppumarkað.

Við ákváðum strax að ágóði sölunnar skyldi renna til góðgerðarfélags og var Haukur staðráðinn í að velja hið góða félag Gleym mér ei sem er Styrktarfélag til stuðnings við foreldra sem missa barn á meðgöngu og /eftir fæðingu.

Við Haukur gengum í gegnum þá erfiðu raun saman að missa fóstur rétt fyrir 12. viku og ég hafði þá einnig misst áður svo félagið og málsstaðurinn er okkur hugleikinn. Staðreyndin er reyndar sú að talið er að þriðja hver kona upplifi þetta einhvern tímann á lífsleiðinni og auðvitað er það ekki aðeins mæðurnar sem upplifa missinn heldur allir sem standa þar nærri, foreldrar, systkini, ömmur og afar og svo framvegis svo þetta snertir jú ansi marga.

Eftir svolitlar umræður á instagram og miðlunum okkar í gegnum Systur&Makar áttum við okkur fljótt á því að fólk vildi gefa af sér, taka þátt og hjálpa til með því bæta á loppumarkaðslagerinn.

„Gætum við kannski fengið fyrirtæki til að styrkja með tombólvinningum líka?!“
Við hentum hugmyndinni út í kosmósið og fyrr en varði fóru að berast skilaboð, email, gjafasendingar í búðina, gjafasendingar heim, símtöl og jákvæð viðbrögð allstaðar að!!

Það var algjörlega magnað að upplifa þetta og við þunguð urðum meira með hverjum deginum fyrir ótrúlegum viðbrögðunum! Það vildu hreintlega allir og ömmur þeirra aðstoða!

Brátt voru öll herbergi, hirslur, geymslur og gólf full af innpökkuðum gjafapökkum, umslögum með gjafabréfum, miðum og miðum á tikktinum á markaðinn og tjöld fyrir garðinn, prentaðar merkingar, boð um þjónustu á ruslatunnum og ég veit ekki hvað og hvað. Eins fóru að berast ansi mörg boð frá hjálparhellum sem vildu svo sannarlega fá að hjálpa til! Sækja gjafir, skutlast og græja, við fengum hjálp við tjöldun, upptökur, tombóludrátt og Úlfurinn fékk svolítið umönnun meðan mamma og pabbi dunduðu í öðru!

Tombólumiðasalan fór af stað 16. júní með svo ótrúlegum skelli að netsíðan réði ekki neitt við neitt og miðasala sem að hámarki átti leyfa 150 seld númer klikkaði og seldust á innan við 2 mínútum yfir 500 miðar!

Shit!!!

Þá fór af stað eitthver sá magnaða samhugur sem ég hef orðið vitni að og fyrir tilstilli brilliant einstaklinga og fyrirtækja söfnuðust yfir 1000 vinningar. Okkur tókst að sýna frá “life” tombóludrætti 2 kvöld á Instagram sem og selja heljarinnar ósköp miða á deginum sjálfum.

17. Júní rann upp bjartur og fagur og þá sérstaklega í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem röð gesta náði á tímabili niður á Strandgötu og biðtími var allt að klukkustundalöngur.

Það einkenndi daginn rólegheitabragur, kurteisi og kærleiki og bara það eitt að garðurinn væri baðaður sól á 17. Júní af öllum dögum lýsir þessum einstaka degi svo vel!

Ekkert af þessu hefðum við getað gert án endalausrar aðstoðar fjölda fólks sem hvert og eitt brilleraði á sínu sviði og öll handtök voru svo ótrúlega mikilvæg!

Litli loppumarkaðurinn, bílskúrstilektin okkar Hauks í Mjósundi varð að svolítið stærra dæmi en ætlunin var í upphafi og með allri þessari hjálp og mögnuðum viðbrögðum vina okkar og viðskiptavina tókst okkur að safna fyrir Gleym mér ei 3.350.000.-

Hugmyndir eru hættulegar já en kræst hvað þetta var geggjað!!

Takk!

MIÐSUMARSVAKA Í MJÓSUNDI

Ég bendi á að enn er hægt að styrkja Gleym mér ei:

Kennitala: 501013-1290
Reikningsnúmer: 0357-22-000411