“Tiltekt með tilgang” var verkefni sem við hjá Volcano Design og Systur&Makar ákváðum að hrinda í gang en við vorum að taka til á saumastofunni okkar og vildum um leið láta gott af okkur leiða. Um er að ræða vörur sem voru framleiddar á Íslandi alfarið úr efnisafgöngum og afskurðum. Hér var því spornað við landfyllingu sem og ágóði af hverri seldri vöru rann beint í styrktarsjóð bleiku slaufunnar.
Hringtreflarnir eru hlýir og góðir með snúning og liggja því vel við brjóstkassa en einnig er hægt er að snúa þeim upp í tvöfaldan trefil.

Ágóði hverrar seldrar vöru rann óskiptur til Bleiku Slaufunnar en við viljum nýta tækifærið og þakka Krabbameinsfélaginu fyrir óendanlegan dugnað í þágu þessa mikilvæga málefnis bæði í formi styrktarvinnu og fræðslu. Það er magnað að fylgjast með því starfi sem þið sinnið ár hvert af ástríðu og við erum stolt af því að fá að taka þátt í ár!
500.000.- króna styrkur
