Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Páskaeggjaratleikur 2025- Ljónshjarta

Síðan 2020 hef ég útbúið páskaeggjaratleik sem ég hef gefið fylgjendum mínum frítt fyrir þá sem vilja. Um er að ræða ratleik með þrautum og vísum og prentefni sem hver og einn getur svo sett upp heima hjá sér.
 
Páskapakkinn árið 2025 var eins og fyrri ár frír fyrir alla sem vildu en það árið fæddist sú hugmynd um að bjóða þeim sem vildu, að greiða fyrir pakkann. Fengi þannig pakkinn sem nú þegar gleður börn víða um heim enn meira vægi og færi þá upphæðin til góðs málefnis
 
Ljónshjarta eru samtök til stuðnings fólki sem misst hefur maka og barna sem misst hafa foreldri.
 
Þetta málefni er mér ansi nærri en í febrúar 2025 missti ég eldri bróðir minn aðeins 46 ára fjölskyldumann úr illvígu krabbameini. 
 
Vonin var að safna smá sjóð til að gefa í hans nafni en aðalverkefni félagsins er að niðurgreiða sálfræðikostnað barna og maka sem eftir lifa. Það er mér mikill heiður að veita þessu góða félagi þennan veglega styrk með ykkar aðstoð!
 
1.970.000.-
 
safnast ekki að sjálfu sér, þið gerðuð þetta!
 
Takk fyrir að vera grand og frábær!
TAKK!!!!!
 
Ps. Það er alltaf hægt að styrkja félagið beint:
Reikningsnúmer: 536-14-400960 Kennitala: 601213-0950