Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Las Vegas glitter toppur

9.990 kr
Litur: Gull
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Las Vegas glitter er glæsilegur toppur með lurex-glitri sem setur fallegan svip á hvaða outfit sem er. Toppurinn er úr mjúku og teygjanlegu míkrófíberefni sem fellur vel að líkamanum og er mjúkur og þægilegur. Tilvalinn spari eða til að klæða upp hversdagslegra dress.

Síðustu eintökin

Síðustu eintökin!

Velkomin í Síðustu eintökin – hér finnur þú síðustu stærðir, síðustu liti og vörur sem koma ekki aftur.

Þegar vara lendir hér er hún að kveðja. Kannski er bara ein stærð eftir, einn litur eða varan hefur verið tekin úr framleiðslu. Ef þú finnur eitthvað sem þú elskar skaltu ekki bíða of lengi – þegar síðasta eintakið fer, þá er það farið.

✨ Því fleiri, því betri kjör ✨

Afslátturinn reiknast sjálfkrafa í körfunni.

  • 1 vara = 10% afsláttur
  • 2 vörur = 15% afsláttur
  • 3 vörur = 20% afsláttur
  • 4 vörur = 25% afsláttur
  • 5 eða fleiri vörur = 30% afsláttur

Afslátturinn gildir eingöngu af vörum í Síðustu eintökin.

↩️ Ef eitthvað passar ekki...

Við viljum að þú elskir það sem þú tekur með heim. Ef eitthvað reynist ekki rétt fyrir þig geturðu að sjálfsögðu skilað eða skipt því samkvæmt almennum skilmálum okkar. Hafðu bara í huga að ef hluta pöntunnar er skilað verður afslátturinn endurreiknaður út frá þeim fjölda vara sem þú heldur eftir.

Dæmi:

Ef þú kaupir 4 vörur og færð 25% afslátt en skilar síðan 2 vörum, þá verður pöntunin endurreiknuð samkvæmt 15% afslætti sem gildir fyrir 2 vörur. Endurgreiðslan miðast við það.

Auðvitað gildir áfram fullur skilafrestur samkvæmt almennum skilmálum okkar.

💛 Markmiðið með Síðustu eintökunum er að gefa þessum síðustu fallegu flíkum tækifæri á nýju heimili – og verðlauna þig fyrir að taka fleiri en eina með heim.

Stærðir

• S/M hentar stærðum 36–42 • L/XL hentar stærðum 42–46/48 eða þeim sem vilja aðeins rýmri snið

Um vörumerkið

Tim & Simonsen er danskt hönnunarmerki stofnað árið 2012 sem leggur áherslu á gæði, þægindi og tímalausa hönnun. Merkið er þekkt fyrir fallega skó, töskur og fylgihluti úr vönduðum efnum, auk mjúkra og þægilegra fatnaðarvara. Hönnunin sameinar skandinavískan einfaldleika, góða endingu og nútímalegan stíl.

Efnislýsing

92% pólýamíð, 8% elastan.

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið við mest 30°C, í höndunum eða á viðkvæmu prógrammi í þvottavél. Má ekki fara í þurrkara, strauja eða hreinsa. Ekki nota bleikiefni.

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr 


Tengdar vörur.