Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Nola (Jorts) Gallastuttbuxur

21.900 kr
Litur: Light Cosmic
Size

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Nola gallastuttbuxurnar eru hrikalega flottar "Jorts", með víðu sniði og ná alveg niður að hnjám. Ótrúlega mjúkar og þægilegar með flottum smáatriðum.

Stærðir

Stærðir frá 38 uppí 44

Um vörumerkið

Para Mi er hollenskt tískumerki sem sérhæfir sig í kvenbuxum og leggur mikla áherslu á fullkomið snið, þægindi og vönduð efni. Frá stofnun árið 2011 hefur merkið þróað sterka sérstöðu með því að einblína á eitt – að hanna buxur sem sitja vel á ólíkum líkamsgerðum og sameina stíl og þægindi. Buxurnar frá Para Mi eru þekktar fyrir sveigjanleg og endingargóð efni, oft með teygju í bæði breidd og lengd, sem tryggir fallegt og þægilegt fit allan daginn. Í línunni má finna fjölbreytt snið, allt frá klassískum og beinum buxum yfir í flare og víðari skálmar, sem gerir hverri konu kleift að finna sitt fullkomna par. Para Mi sameinar tímalausa hönnun og nútímalegan stíl og er því áreiðanlegt val fyrir konur sem vilja bæði fágað útlit og hámarks þægindi í daglegu lífi.

Efnislýsing

58% bómull, 41% Lyocell 1% elastan

Þvottaleiðbeiningar

Má þvo á 30° gráðum og strauja við lágan hita. Þvo með svipuðum litum, ekki setja í þurrkara.

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr