Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Fenja Blússa

12,900 kr
Litur: Silfur
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Fenja blússan er einstaklega skemmtileg toppur sem poppar hvaða dress sem er. 

Toppurinn er úr fíngerðu, gegnsæju meshefni með fallegum silfurlituðum pallíettuskreytingum sem mynda skemmtilegt mynstur. Hangandi pallíettuþræðir gefa honum einstaka hreyfingu og extra glamúr!

Toppurinn er með rúnnuðu hálsmáli, stuttum ermum og lausu, þægilegu sniði. Innan undir er léttur hlýrabolur sem auðvelt er að smella úr.

Fullkominn við fínar buxur eða pils fyrir hátíðleg tilefni en líka ótrúlega töff við gallabuxur!

Stærðir

Kemur í stærðum 34 uppí 44.

Um vörumerkið

A-VIEW er danskt fatamerki sem var stofnað árið 2019 af Jakob Bording Andersen. Merkið hefur á stuttum tíma vakið athygli fyrir fallega, kvenlega og nútímalega hönnun þar sem nýjustu tískustraumar mæta klassískum sniðum, skemmtilegum smáatriðum og góðum gæðum á viðráðanlegu verði. Hjá A-VIEW er lögð mikil áhersla á að konur á öllum aldri geti klætt sig fallega, fundið sinn eigin stíl og upplifað sig sjálfsöruggar í fötunum sínum. Í línunum má finna allt frá rómantískum blússum og glæsilegum kjólum yfir í töff hversdagsflíkur sem auðvelt er að klæða upp eða niður eftir tilefni. Það sem einkennir A-VIEW eru meðal annars falleg efni, kvenleg snið, blúndur, skemmtileg mynstur og vönduð smáatriði sem gefa flíkunum einstakan karakter. A-VIEW er fyrir konur sem elska tísku, vilja leyfa persónuleikanum að njóta sín og kunna að meta fallegar flíkur sem nýtast við ólík tilefni.

Efnislýsing

100% Pólýester

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið á 30°C á viðkvæmu prógrammi. Strauið á lágum hita. Má ekki setja í þurrkara, þurrhreinsa eða nota bleikiefni.

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr