Turnu blazerarnir eru byggðir á Turnu gollunum sem hafa verið alveg einstaklega vinsælar hjá okkur. Þeir eru frekar beinir niður en þó teknir aðeins inn í hliðunum og parast mjög vel bæði við buxur og toppa sem kjóla.

Þeir ná niður á miðjan rass og okkur finnst mjög smart að brjóta upp á ermarnar og hafa þær kvart.

Þeir henta sem utanyfirflíkur í léttara veðri en munu einnig koma sér mjög vel í vetur þegar það fer að kólna. Einfaldir í sniðinu með góðum ermum, saum í baki og opnir að framan með kanti sem rammar hálsmálið fallega og vösum sem falla niður í saum að framan.

Ermarnar eru tvískiptar jakkaermar, ísettar og eru því skarpar og flottar.

Einnig er hægt að fá buxur "Kark buxur" í stíl sem gerir settið að dragt.

Blazerinn er fáanlegur í fimm stærðum: 1 (34/36-38), XS (36/38-40), S (40-42/44), M (44-46/48) og XM (48-50/52)

Við mælum með 30°C þvotti og hengið upp til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.

Blanda: 50% Polyester, 48% Viscose, 2% Elastine

ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com

Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.

Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.


Tengdar vörur

Sjá allt
Lokkar DREA - Par 378
Vara uppseld
Lokkar DREA - Par 379
Lokkar DREA - Par 377
Lokkar DREA - Par 376
Lokkar DREA - Par 375
Vara uppseld
Lokkar DREA - Par 358
Left Versla áfram
Þín pöntun

Karfan þín er tóm