Palazzo buxurnar eru klæðilegar og frekar sparilegar, beinar buxur. Þessar eru svolítið 70's en þetta beina snið hefur poppað upp reglulega á tískupöllunum í gegnum tíðina. 

Þær eru með teygju í mittið og belti sem er laust og því hægt að sleppa ef vill.

Sniðið er beint og vítt alla leiðina niður en þær eru einnig frekar síðar með breiðum faldi neðst. Ferlega klæðilegt og "lengjandi" snið.

Þær eru gerðar úr möttu,"föstu" efni sem þýðir að það er ekki mikil teygja í þeim en þó smá og víddin er góð svo þær rykkjast aðeins í mittinu. Þær eru einnig með fellingum að framan og vösum í hlið.

Þessar eru flottar við boots eða fallega hæla, en þær eru æði á tjúttið eða fyrir aðeins fínni tilefni.

Buxurnar eru fáanlegar í XS (hentar 36/38-40), S (hentar 40-42/44) og M (hentar 42/44-46)

Við mælum með 30°C þvotti og helst ekki nota þurrkara.

Blanda: 100% polyester

Tengdar vörur

Sjá allt
Leggings mattar
Leggings mattar
12.900 kr
20%
Skjól navy blátt
Útsala
Skjól navy blátt
Frá 3.120 kr 3.900 kr
Júlía twist svartar mattar
Skutla svört
Skutla svört
32.500 kr
Leggings mattar/riff
Brim kjóll V-hálsmál svartur
Left Versla áfram
Þín pöntun

Karfan þín er tóm