Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

OK bútakragi 130

19.900 kr

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Ok bútakragi, fastir bútar þeas ekki prjón. 

Hugmyndin að "OKi" á móðir mín; Fríða, en hún er stórmerkileg uppspretta hugmynda og pælinga sem er magnað að fá að taka þátt í. Hún hringdi í mig stuttu eftir að fréttir bárust um að fyrsti íslenski jökullinn væri nú horfinn sökum loftslagsbreytinga og hvatti mig til að gera eitthvað til minningar um hann.

Eftir svolitla umræðu þótti okkur gáfulegast að gera það þá vöru úr einhverju sem hefði sama sem engin áhrif á umhverfið og landfyllingu. Það þýðir að OK er að öllu leiti gert úr afgangs bútum og efnum sem annars væru ekki notuð.

Eins þótti mér sniðugt að þetta væri eitthvað hlýtt, "hlýnun jarðar og jökull" það var eiginlega ekkert annað sem kom til greina.

Úr varð því einskonar búta hulsa eða hálskragi sem einnig er hægt að nota sem sjal með því að draga það aðeins niður á axlir. 

Föstu kragarnir fara reyndar ekki niður á axlir enda engin teygja í þeim, heldur liggja þér á öxlunum.

Með því að nýta bútana þá þýðir það jú að engir tveir "OK" eru eins, hver og einn er einstakur, alveg eins og jöklarnir sem fara nú hverfandi...

Hlýtt, praktískt og unnið úr efnisafskurðum og afgöngum!

Þess má geta að mamma á líka heiðurinn af flestum nöfnum á flíkunum mínum enda er hún gangandi orðabók og viskubrunnur!

Stærðir

Ein stærð en mismunandi tegundir. Prjóna OK- in kölluð "Ok prjónasjal" eru stærst og þau eru með teygjufóðri og bútarnir vanalega með teygju eða úr prjóni, þau er hægt að draga niður á axlir og nota sem sjöl. OK prjónakragarnir eru úr föstum efnum, þeir eru aðeins minni, haldast á öxlum og burðurinn í þeim er meiri en í prjónaokunum svo þau ramma andlitið enn betur. Eins höfum við gert ýmsar útgáfur af minni Ok krögum og sjölum bæði úr föstum efnum og teygjanlegum.

Efnislýsing

Efnisblanda: fjöldi mismunandi efnisbúta sem hafa safnast saman í gegnum tíðina og fá nú nýtt líf í stað þess að breytast í landfyllingu.

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með handþvotti á þessari vöru:

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr