Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Klútur með burkna

16,900 kr
Litur: Svartur m/grænu

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Stóru Volcano klútarnir hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin enda hefur stærðin og formið haldið sér en efnin breyst og prentin sömuleiðis.

Nú bjóðum við upp á klúta með burknaprenti en burkninn er sjaldgæf jurt í íslenskri náttúru og þó hann sé lítið notaður í vestrænum grasalækningum nú á tímum hefur hann þónokkra eiginleika.

Stóriburkni, sem er fyrirmynd þessa prents, er sagður vera ormadrepandi en einnig hafa rannsóknir á burknanum leitt í ljós hamlandi áhrif á vöxt krabbameinsfruma og HIV veiru. (Heimildir fengnar úr bókinni „Íslenskar lækningajurtir“ eftir Önnu Rósu Róbertsdóttur).

Eins og hún skrifar í bókinni: „Rannsókn á áhrifum stóraburkna á mýs og rottur leiddi í ljós afar sérkennilega aukaverkun, en getnaðarlimur karldýra stækkaði umtalsvert er þeim var gefinn stóriburkni“.

Klútarnir eru tímalausir og poppa upp hvaða dress sem er, þeir eru einnig oft notaðir sem sjöl enda stórir og notalegir með kögri sem gerir þá enn áhugaverðari og gefur þeim örlitla hreyfingu.

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með handþvotti á þessari vöru: ATH* prentin geta dofnað í þvotti og notkun, vinsamlegast þvoið í höndum eða í netapoka og forðist að setja í vél á mikinn snúning eða með grófum efnum og/eða fatnaði með rennilásum.

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr