Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Huginn

32,500 kr
Litur: Viscose svartur
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Huginn er ferlega skemmtilegur og sniðugur kjóll sem hægt er að breyta á nokkra vegu. 

Hægt er að hafa V hálsmálið að framan eða aftan og þá rúnað að framan eða aftan.

Hann er með böndum í hliðinni sem hægt er að binda saman á nokkra vegu:

Böndin er hægt að binda laust niður að framan og hafa hann svolítið hippalegan og lausan.

Einnig er hægt að binda böndin laust að aftan og láta þau lafa niður á rass, hann er einnig frekar þægilegur og "loose fit" þannig. Að lokum er hægt að þrengja hann og binda hann upp í mitti þannig að böndin endi að framan í hnút eða að aftan í hnút og mynda böndin þannig hálfgert belti. Það ýkir mittið en gefur þó hreyfingu í efri partinn og felur brjóstahaldaralínur.

Smart og virkilega klæðilegur kjóll með kvartermum og fallegri sídd sem lítið mál er að dressa bæði upp og niður en hann er frekar síður með svolítilli auka vídd í hliðunum neðst. Hægt að para við hæla eða boots og nota hversdags eða virkilega spari!

Við erum alveg ótrúlega ánægð með útkomuna á þessu fallega en einfalda sniði.

Stærðir

Þessi kemur í tveimur stærðum XS (36/38-40/42) S (42-52/54)

Um vörumerkið

Volcano Design – íslensk hönnun með sögu Volcano Design er íslenskt hönnunarmerki sem varð til árið 2008 – og átti í raun bara að vera eitt sumar! Hugmyndin kviknaði hjá Kötlu Hreiðarsdóttur eftir nám í fatahönnun, visual merchandising og innanhússhönnun. Með gamla saumavél frá ömmu sinni og sterka tilfinningu fyrir því að það vantaði falleg, kvenleg og klæðileg föt fyrir fjölbreyttar konur, varð Volcano Design til. Fyrstu árin ferðaðist Katla með hönnunina um landið, hélt sölusýningar og byggði smám saman upp tryggan hóp viðskiptavina. Fljótlega kom eigin verslun og frá stofnun hafa Volcano-flíkurnar verið saumaðar á eigin saumastofu hér á Íslandi. Frá upphafi hefur áherslan verið á góð snið, þægindi, falleg efni og kvenlegar flíkur sem vinna með ólíkum líkamsgerðum. Framleiðslan hefur þróast í gegnum árin og færst að hluta út fyrir landsteinana, en hugsunin á bak við merkið er enn sú sama. Að hanna föt fyrir konur eins og þær eru – og föt sem þeim líður vel í. ❤️

Efnislýsing

Siffon: Blanda: 100% Polyester OEKO TEX CERTIFIED Grændoppóttur: Blanda: 100% Viscose Viscose svartur: Blanda: 100% Viscose

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með 30°C þvotti og forðist þurrkarann.

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr