Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Maja og sængurkrílin

3,990 kr

Maja á fimm ára afmæli og fær sæng í afmælisgjöf frá Kidda frænda. Ekki beint spennandi gjöf … þar til nóttin kemur. Þegar Maja getur ekki sofnað af því að hausinn er á fullu vakna sængurkrílin: Hugi, Dreyma, Örvi, Uggi, Pirri og Glóa – lítil loðin kríli sem eru alveg eins og tilfinningarnar okkar.

Hvert kríli kennir Maju æfingu sem hjálpar þegar hugurinn ærslast: blómaöndun, blöðruöndun, kanínuöndun, sofandi björn, skjaldbökuöndun og spagettíæfinguna hennar ömmu. Einföld verkfæri sem börn geta gripið til þegar þau eru æst, pirruð, hrædd eða eiga erfitt með að róa sig.

Í bókinni eru líka felumyndir þar sem krílin fela sig og aftast er farið yfir hvaða tilfinningu hvert kríli stendur fyrir.

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr