Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Milou jakki Camel

18.900 kr
Stærðir

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Milou jakkinn er úr sterku efni, með svörtum tölum og tveimur brjóstvösum. Hann passar einstaklega vel við Megan buxurnar fyrir fullkomið “complete outfit”! Töffaralegur efri partur sem eiginlega mitt á milli þess að vera skyrta og buxur. Bæði smart hafður opinn sem og lokaður.

Blanda: 64% viscose, 31% polyamide, 5% elastan

Stærðir: XS (34-36) S (38-40) M (40-42) L (42-44) XL (46-48) XXL (50-52) XXXL (54-56)

ZOSO er 15 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki frá Amsterdam. Merkið hefur vaxið hratt undanfarin ár og hefur sett sér það markmið að bjóða kvenfatnað sem sameinar gæði, þægindi og stílhreina hönnun. Fyrirtækið vinnur með birgjum og framleiðendum sem deila þeirra sýn á framtíðina og áhrif á umhverfið.

Vörur merkisins henta konum sem vilja daglegan lúxus, ekki of formlegt og fer auðveldlega á milli dag og kvöld notkunnar. Einkenni ZOSO varanna eru teygjanleg efni, þægilegur og sportlegur fatnaður sem þó hentar einnig til fínni nota.

Vörumerkið býður upp á fjölbreytt vöruúrval og breitt stærðarval en um er að ræða 7 stærðir af hverri einustu vöru. ZOSO er einnig þekkt fyrir frábær gæði af "travel-efnum" sem er bæði einstaklega þægilegt efni og heldur sér mjög vel.

Síðustu eintökin

Síðustu eintökin!

Velkomin í Síðustu eintökin – hér finnur þú síðustu stærðir, síðustu liti og vörur sem koma ekki aftur.

Þegar vara lendir hér er hún að kveðja. Kannski er bara ein stærð eftir, einn litur eða varan hefur verið tekin úr framleiðslu. Ef þú finnur eitthvað sem þú elskar skaltu ekki bíða of lengi – þegar síðasta eintakið fer, þá er það farið.

✨ Því fleiri, því betri kjör ✨

Afslátturinn reiknast sjálfkrafa í körfunni.

  • 1 vara = 10% afsláttur
  • 2 vörur = 15% afsláttur
  • 3 vörur = 20% afsláttur
  • 4 vörur = 25% afsláttur
  • 5 eða fleiri vörur = 30% afsláttur

Afslátturinn gildir eingöngu af vörum í Síðustu eintökin.

↩️ Ef eitthvað passar ekki...

Við viljum að þú elskir það sem þú tekur með heim. Ef eitthvað reynist ekki rétt fyrir þig geturðu að sjálfsögðu skilað eða skipt því samkvæmt almennum skilmálum okkar. Hafðu bara í huga að ef hluta pöntunnar er skilað verður afslátturinn endurreiknaður út frá þeim fjölda vara sem þú heldur eftir.

Dæmi:

Ef þú kaupir 4 vörur og færð 25% afslátt en skilar síðan 2 vörum, þá verður pöntunin endurreiknuð samkvæmt 15% afslætti sem gildir fyrir 2 vörur. Endurgreiðslan miðast við það.

Auðvitað gildir áfram fullur skilafrestur samkvæmt almennum skilmálum okkar.

💛 Markmiðið með Síðustu eintökunum er að gefa þessum síðustu fallegu flíkum tækifæri á nýju heimili – og verðlauna þig fyrir að taka fleiri en eina með heim.

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr 


Tengdar vörur.