Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Sjóður kjóll

29.250 kr 32.500 kr
Litur: Svartur
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Sjóður er mjúkur og þægilegur kjóll í fallegu sniði með V hálsmáli þar sem framstykkin misvíxlast. Hann er með síðar ermar, teygju í mittið og rykkingu að neðan. Þeir eru smart bæði við þröngar gallabuxur eða sparilegir við leggings eða sokkabuxur og hæla.

Einstaklega klæðilegur og kvenlegur kjóll sem liggur þó laus yfir magasvæði en fer vel við kvenlegar línur. 

Síðustu eintökin

Síðustu eintökin!

Velkomin í Síðustu eintökin – hér finnur þú síðustu stærðir, síðustu liti og vörur sem koma ekki aftur.

Þegar vara lendir hér er hún að kveðja. Kannski er bara ein stærð eftir, einn litur eða varan hefur verið tekin úr framleiðslu. Ef þú finnur eitthvað sem þú elskar skaltu ekki bíða of lengi – þegar síðasta eintakið fer, þá er það farið.

✨ Því fleiri, því betri kjör ✨

Afslátturinn reiknast sjálfkrafa í körfunni.

  • 1 vara = 10% afsláttur
  • 2 vörur = 15% afsláttur
  • 3 vörur = 20% afsláttur
  • 4 vörur = 25% afsláttur
  • 5 eða fleiri vörur = 30% afsláttur

Afslátturinn gildir eingöngu af vörum í Síðustu eintökin.

↩️ Ef eitthvað passar ekki...

Við viljum að þú elskir það sem þú tekur með heim. Ef eitthvað reynist ekki rétt fyrir þig geturðu að sjálfsögðu skilað eða skipt því samkvæmt almennum skilmálum okkar. Hafðu bara í huga að ef hluta pöntunnar er skilað verður afslátturinn endurreiknaður út frá þeim fjölda vara sem þú heldur eftir.

Dæmi:

Ef þú kaupir 4 vörur og færð 25% afslátt en skilar síðan 2 vörum, þá verður pöntunin endurreiknuð samkvæmt 15% afslætti sem gildir fyrir 2 vörur. Endurgreiðslan miðast við það.

Auðvitað gildir áfram fullur skilafrestur samkvæmt almennum skilmálum okkar.

💛 Markmiðið með Síðustu eintökunum er að gefa þessum síðustu fallegu flíkum tækifæri á nýju heimili – og verðlauna þig fyrir að taka fleiri en eina með heim.

Stærðir

Sjóður kemur í stærð XS (hentar 36/38-40) S (hentar 40-42/44) M hentar 44-46/48) Ég er í stærð S á mynd og er stærð 44 og 173cm á hæð.

Um vörumerkið

Volcano Design stendur fyrir kraft, kvenleika og sjálfstraust. Frá 2008 höfum við skapað hönnun sem faðmar líkamann og lyftir andanum. Flíkurnar okkar eru hannaðar fyrir konur sem þora að vera þær sjálfar – mjúkar og sterkar á sama tíma.

Efnislýsing

Efnisblanda: 92% polyester 8%Spandex

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast forðist þurrkarann þar sem hann fer aldrei vel með flíkurnar.

Myndband

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr 


Tengdar vörur.