Left Halda áfram að versla
Pöntunin þín

Það eru engar vörur í körfunni

Viltu bæta við?
2.960 kr 3.700 kr
2.320 kr 2.900 kr

Sassy stuttbuxur Extra háar Nude

9.592 kr 11.990 kr

Lýsing

Fáðu mótaðar línur eins og skot! 

Extra uppháar hjólabuxur / stuttbuxur!

Þetta eru þessar sem allir virðast vera að tala um!
Efst á buxunum er sílikon"anti-slip" grip til að halda þeim á sínum stað og sjá til þess að þær rúlli ekki niður. Mikilvægt er að tosa þær vel upp bakið, því þá rúllast þær ekkert niður, mjög gott trix!

Þær eru svo léttar og liprar, efnið er mjög þunnt og liðlegt, en þrátt fyrir það eru þær ekki gegnsæjar!

Saumlausar yfir lærin og rúllast ekkert upp heldur.

Stuðningurinn við magann byrjar við lífbein og er örlítið V-laga sem sér til þess að strengurinn heldur vel utan um neðrikvið og býr þar af leiðandi ekki til línu um miðjan maga og þrýstir engu niður fyrir neðan streng. Strengurinn heldur vel við og nær að móta línurnar frá toppi til táar.

Þrátt fyrir að vera aðhaldshjóla- / stuttbuxur þá þrengja þær ekki óþarflega mikið að. Þær eru ótrúlega þægilegar og móta þig.

Þessar hjóla-/ stuttbuxur eru frábærar undir þinn uppáhalds kjól, buxur, pils eða hvað sem er, þú getur meira að segja notað þær í ræktinni!


Um leið og þú mátar þær þá skiluru hvað ég á við, þær eru æði!!

Til í stærðum Small til XXLarge

Ef þú ert efins með stærðir mæli ég með að taka sömu stærð og þú tekur venjulega að ofan, eða stærðina fyrir ofan ef þú vilt ekki mikið aðhald.

Efnið er: : 65% polyamide, 34% elastane, 1% silicone.
**Athugið þvottaleiðbeiningar! 

Stærðir í sentimetrum til viðmiðunnar
S
84-91
M
94-102
L 104-112
XL 114-122
XXL 124-132