Systur & Makar er notaleg lífstílsverslun með íslenska hönnun í formi fatnaðar, skarts og heimilisvöru sem öll er hönnuð og framleidd af tveimur systrum, maka annarrar og starfsmönnum þeirra.
Verslanirnar eru með merki systranna Krista Design og Volcano Design í forgrunni ásamt úrvali af sykurlausri og lágkolvetna matvöru, snyrt- og hárvörur, barnavörur, sokkabuxur og gjafavörur frá hinum ýmsu merkjum. Þær eru staðsettar í Síðumúla 21. í Reykjavík og hér á netinu.
Vinsamlegast athugið að ef áfangastaður pöntunnar er annar en Ísland mælum við með því að nota ensku síðuna okkar www.systurogmakar.com þar sem VSK er undanþeginn.