Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Dreifbýlisdagar

“Dreifbýlisdagar” er tímabundið tilboð sem Systur&Makar bjóða uppá þar sem frí heimsending innanlands með Dropp og skil&skipti eru endurgjaldslaus með vörukaupunum. 

Tilboðin gilda tímabundið en þá er bæði frí sending af öllum vörukaupum sem og frí skil í þann tíma sem tilboðið gildir.

*ath vörukaupin þurfa að eiga sér stað á því tímabili sem tilboðið er í gildi.

Hvernig virkar þetta?

  • Með pöntuninni fylgir “skil&skipti” miði sem og “endursendingarmiði frá Dropp”.
  • Fylltu út “skil&skipti” miðann með viðeigandi upplýsingum hvort sem þú vilt fá aðra stærð/vöru, ef þú vilt skila og fá inneign eða skila og fá endurgreitt.
  • Takið vöruna/vörurnar sem skila á og setjið aftur í umbúðirnar sem þær komu í.
  • Notið endursendingarmiðann sem fylgdi með pöntuninni og límdu á pokann.
  • Passaðu að pakka pöntuninni vel inn í svo hún þoli flutning vel og gott er að athuga að endursendingarmiðinn sé límdur slétt á.
  • Þegar það er klárt þá getur þú farið með pakkann á næsta Dropp afhendingarstað en skoða má afgreiðslustaði Dropp neðst á heimasíðu þeirra dropp.is undir “afgreiðslustaðir”.
  • Dropp fær svo pakkann aftur í vöruhús þar sem hann er skannaður aftur og sendur til Systur&Makar til að skoða og ganga frá.

Hafa ber í huga: tilboðið á við um eina fría sendingu og ein frí skil af hverri pöntun. Greiða þarf sendingarkostnað af nýju vörunni/annarri stærð.

*sömu skilareglur gilda og vanalega. Skilafrestur er í allt að 14 daga frá dagsetningu vörukaupa. Varan þarf að vera heil og ónotuð. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.

Endurgreiðsla er gerð á sama hátt og kaupin voru gerð.

athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 5 virka daga til að ganga í gegn eftir að vara er komin aftur til okkar. Þetta getur verið mismunandi eftir kortafyrirtækjum og getum við því miður ekki haft áhrif á þetta.