Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Turna midi

18,450 kr 36,900 kr
Litur: Svartur
Stærð

Ekki í boði til afhendingar í Popup í Hafnarfirði

Turna gollurnar eru svakalega klæðilegar og tímalausar opnar peysur sem eru frábærar við allskonar kjóla og toppa. Þær eru milli síðar og ná vel niður fyrir rass, opnar að framan með vel síðum ermum sem krumpast aðeins fremst.

Turna virkar svolítið eins og blazer en er úr þægilega Ponte efninu okkar sem er eiginlega eins og sparilegt jogging. Þær eru svolítið teknar inn í mittið með einföldum kraga sem stoppar á miðri leið. Það gefur þessum peysum virkilega töffaralegt yfirbragð en þó eru þær algjör klassík! 

Þær henta sem utanyfirflíkur í léttara veðri en munu einnig koma sér mjög vel í vetur þegar það fer að kólna. Þær eru einfaldar í sniðinu með góðum ermum, opnar að framan með kanti sem rammar hálsmálið fallega og vösum sem falla niður í saum að framan.

Ermarnar eru ísettar og eru því skarpar og flottar.

Stærðir

Þær eru fáanlegar fimm stærðum: 1 34/36, XS sem hentar 38-40, stærð S 42-44 og stærð M 46-48 og XM 50-52

Efnislýsing

Blanda: 69%Nylon/26%Rayon/5%Spdx

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með 30°C þvotti og leggið á handklæði til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr