Frí heimsending innanlands af pöntunum yfir 25.000.-

Takk fyrir þig

Draupnir velúr silfur/blóma

34.900 kr
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Draupnir er dásamlega klæðilegur og fallegur kjóll. Hann er ósymmetrískur sem þýðir að hann er ekki eins í hvorri hlið, hvorki að framan né aftan. Hann er missíður og stoppar fyrir ofan hné öðru megin en fyrir neðan það hinu megin. Síðerma og með háu hálsmáli en samt er hann ótrúlega kynþokkafullur og elegant.

Hann rykkist kriss kross yfir magasvæðið með follum sem að gefa honum bæði vídd og örlitla hreyfingu yfir magasvæðið sem ýkir mittið um leið og það felur magasvæðið. Þá er hann þröngur yfir brjóst með penum brjóstsaumum og fer því þétt yfir mjaðmirnar.

Draupnir er með saum niður mitt bakið og liggur því vel við bak og rass.

Draupnir er fáanlegur í stærð XS (hentar 36/38-40) S (hentar 40-42/44) M hentar 44-46/48)

Við mælum með 30°C þvotti á röngunni og ekki nota þurrkara.

Blanda:  95% polyester, 5% spandex.

Sendingarkostnaður