Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Olana Buxur Beinar

16,900 kr
Color: Svartar
Size

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Olana buxurnar frá Rue de Femme eru einstaklega flottar og klæðilegar buxur með fáguðu og tímalausu sniði. Buxurnar eru með fallegum pressubrotum sem gefa þeim elegant yfirbragð og teygju aftan í mittinu sem tryggir aukin þægindi.

Buxurnar eru í styttra sniði (cropped) með fremur þröngum skálmum og eru ótrúlega fjölhæfar! Paraðu þær við fallega blússu og hæla fyrir glæsilegt útlit eða einfaldan bol og strigaskó fyrir afslappaðri en töff heild.

Stærðir

Frá XS uppí XXL

Um vörumerkið

Rue de Femme er danskt fatamerki sem var stofnað árið 2014 og á rætur sínar að rekja til Risskov, rétt utan við Árósar í Danmörku. Merkið sameinar fágaða skandinavíska hönnun, kvenlegan glæsileika og þægindi. Mikil áhersla er lögð á falleg snið, vönduð efni og skemmtileg smáatriði sem gefa flíkunum einstakan karakter. Í línunum má finna allt frá klassískum buxum, fallegum skyrtum og jökkum yfir í rómantíska kjóla og kvenlegar blússur. Flíkurnar eru fjölhæfar og auðvelt að klæða þær bæði upp og niður eftir tilefni. Rue de Femme leggur áherslu á tímalausa hönnun, gæði og fallegar flíkur sem eiga sér stað í fataskápnum ár eftir ár. Rue de Femme er fyrir konur sem elska fallega hönnun, vilja líða vel í fötunum sínum og kunna að meta klassískan glæsileika með nútímalegu ívafi.

Efnislýsing

95% pólýester og 5% Elastan

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr