Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Aaria Paloma Stacked Lokkar

33,900 kr
Litur: Gull

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Paloma Illusion eyrnalokkarnir eru áhrifarík blanda af hráum elegans og fáguðum einfaldleika.

Með dramatískri lengd og þremur röðum af oddalaga pendulum grípa þeir ljósið á einstakan hátt og glitra við hverja hreyfingu. 

Lokkarnir eru unnir úr endurunnu sterling silfri og húðaðir með 14k gulli, með þægilegri og öruggri hring-lokun sem tryggir góða festu allan daginn. Þeir eru hannaðir til að skapa blekkingu um þrjú göt með aðeins einu gati og bæta samstundis dýpt og vídd í eyrnaskreytinguna – án þess að bæta við fleiri götum.

Fyrir vel útfærða lagskiptingu má para þá með styttri Lynx eyrnalokkunum.

Lokkarnir eru fáanlegir í gylltu, silfruðu eða bæði gull og silfur.


Efni
Endurunnið 925 sterling silfur með 2,5 míkron húðun af 14k gulli

Stærð
Þvermál hrings: 8 mm
Heildarlengd frá pinna: 42 mm

 

Um vörumerkið

Aaria London er breskt skartgripamerki stofnað árið 2021 af Ariana Diamant með áherslu á tímalausa, kvenlega og lagaskipta hönnun sem sameinar nútímalegan glæsileika og effortless luxury.

Merkið varð þekkt fyrir einkennandi eyrnalokka sem skapa „stacked“ útlit úr einu gati og hannar skartgripi sem eiga að efla sjálfstraust, persónuleika og sjálfstjáningu.

Aaria London notar meðal annars endurunnið sterling silfur og gull vermeil og leggur áherslu á meðvitaða framleiðslu, gæði og skart sem segir sögu þess sem það ber

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr