Frí sending er af pöntunum innanlands yfir 25.000.-

Strá kjóll

28.900 kr
Litur: Multi grænn
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Strá kjóll er léttur aðsniðinn kjóll í millisídd með síðum ermum og fallegu þveru hálsmáli með besetningu. Hann er með þröngum ermum og frábær grunnur fyrir hverskonar skart eða belti.

Síðustu eintökin

Síðustu eintökin!

Velkomin í Síðustu eintökin – hér finnur þú síðustu stærðir, síðustu liti og vörur sem koma ekki aftur.

Þegar vara lendir hér er hún að kveðja. Kannski er bara ein stærð eftir, einn litur eða varan hefur verið tekin úr framleiðslu. Ef þú finnur eitthvað sem þú elskar skaltu ekki bíða of lengi – þegar síðasta eintakið fer, þá er það farið.

✨ Því fleiri, því betri kjör ✨

Afslátturinn reiknast sjálfkrafa í körfunni.

  • 1 vara = 10% afsláttur
  • 2 vörur = 15% afsláttur
  • 3 vörur = 20% afsláttur
  • 4 vörur = 25% afsláttur
  • 5 eða fleiri vörur = 30% afsláttur

Afslátturinn gildir eingöngu af vörum í Síðustu eintökin.

↩️ Ef eitthvað passar ekki...

Við viljum að þú elskir það sem þú tekur með heim. Ef eitthvað reynist ekki rétt fyrir þig geturðu að sjálfsögðu skilað eða skipt því samkvæmt almennum skilmálum okkar. Hafðu bara í huga að ef hluta pöntunnar er skilað verður afslátturinn endurreiknaður út frá þeim fjölda vara sem þú heldur eftir.

Dæmi:

Ef þú kaupir 4 vörur og færð 25% afslátt en skilar síðan 2 vörum, þá verður pöntunin endurreiknuð samkvæmt 15% afslætti sem gildir fyrir 2 vörur. Endurgreiðslan miðast við það.

Auðvitað gildir áfram fullur skilafrestur samkvæmt almennum skilmálum okkar.

💛 Markmiðið með Síðustu eintökunum er að gefa þessum síðustu fallegu flíkum tækifæri á nýju heimili – og verðlauna þig fyrir að taka fleiri en eina með heim.

Stærðir

Strá kemur í 3 stærðum XS (hentar ca 36/38-40), S (42-44) og M (46-48/50).

Efnislýsing

Devoré: Efnisblanda: 68% Polyester, 34% nylon, 8% elastine/spandex Rifflaða efnið: Efnisblanda: 95% polyester, 5% spandex Multi efnið: Efnisblanda: 95% polyester, 5% elastan

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast ekki nota þurrkara. Eins bendum við á að nota ekki gróf hálsmen eða annað sem gæti rifið upp efnið og látið það byrja að hnökra. 

Myndband

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr 


Tengdar vörur.