Leggings mattar/riff

12,900 kr
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Leggingsbuxur Volcano Design hafa löngum verið ein vinsælasta varan okkar og fengið þónokkuð umtal um gæði, góðan stuðning og þægindi. Katla, hönnuður Volcano, vildi gera leggings sem að héldu mjög vel við og myndu „slétta“ magann.. (þetta kemur því alls ekki við að hún hefur ekkert gaman af leikfimi.. nei nei) ;)

Buxurnar eru vel þröngar og ná hátt upp á maga og eru frekar síðar svo þær krumpast svolítið niðri við ökklann.

Þessar eru með tveimur efnum, annarsvegar möttu á efri partinum og hinsvegar er riff efni neðst sem skáskerst niður fyrir hné og nær utan um kálfa. Skvísulegar og töff!

Þær eru fáanlegar í fjórum stærðum XS sem henta 36/38-40, S henta 40-42/44, M henta 42/44-46 og XM henta 46/48-50 (við erum ekki með stærð L heldur heitir hún XM..einfaldlega afþví við vildum það!)

Þessar geta verið svolítið ávanabindandi!

Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast ekki nota þurrkara.

Efnisblanda: 92% Polyester, 8% Spandex.

Síðustu eintökin

Síðustu eintökin!

Velkomin í Síðustu eintökin – hér finnur þú síðustu stærðir, síðustu liti og vörur sem koma ekki aftur.

Þegar vara lendir hér er hún að kveðja. Kannski er bara ein stærð eftir, einn litur eða varan hefur verið tekin úr framleiðslu. Ef þú finnur eitthvað sem þú elskar skaltu ekki bíða of lengi – þegar síðasta eintakið fer, þá er það farið.

✨ Því fleiri, því betri kjör ✨

Afslátturinn reiknast sjálfkrafa í körfunni.

  • 1 vara = 10% afsláttur
  • 2 vörur = 15% afsláttur
  • 3 vörur = 20% afsláttur
  • 4 vörur = 25% afsláttur
  • 5 eða fleiri vörur = 30% afsláttur

Afslátturinn gildir eingöngu af vörum í Síðustu eintökin.

↩️ Ef eitthvað passar ekki...

Við viljum að þú elskir það sem þú tekur með heim. Ef eitthvað reynist ekki rétt fyrir þig geturðu að sjálfsögðu skilað eða skipt því samkvæmt almennum skilmálum okkar. Hafðu bara í huga að ef hluta pöntunnar er skilað verður afslátturinn endurreiknaður út frá þeim fjölda vara sem þú heldur eftir.

Dæmi:

Ef þú kaupir 4 vörur og færð 25% afslátt en skilar síðan 2 vörum, þá verður pöntunin endurreiknuð samkvæmt 15% afslætti sem gildir fyrir 2 vörur. Endurgreiðslan miðast við það.

Auðvitað gildir áfram fullur skilafrestur samkvæmt almennum skilmálum okkar.

💛 Markmiðið með Síðustu eintökunum er að gefa þessum síðustu fallegu flíkum tækifæri á nýju heimili – og verðlauna þig fyrir að taka fleiri en eina með heim.

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr 


Tengdar vörur.