Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Jackiecras blússa

19,900 kr
Litur: Cream
Stærð

Ekki í boði til afhendingar í Popup í Hafnarfirði

Jackiecras blússan er einstaklega falleg og kvenleg blússa með rómantísku yfirbragði. Rúmgóðar púffermar og laskaskurður á öxlum skapa mjúkt og fallegt fall. Slaufan við hálsmálið og skraut steinarnir á henni setja svo punktinn yfir i-ið.

Blússan er í þægilegu, lausu sniði sem gerir hana bæði elegant og auðvelda í stylingu. Hún er dásamleg við pils og fínni buxur en kemur ekki síður vel út við gallabuxur fyrir afslappaðra lúkk.

Stærðir

Kemur í stærðum 34 uppí 44 Katla er í stærð 40 (er vanalega í stærð 44 en notar stærð 40 í þessari vöru.)

Um vörumerkið

Crās er danskt tískumerki frá Kaupmannahöfn, stofnað árið 2019, sem fagnar kvenleika, litagleði og einstaklingsbundnum stíl. Merkið er þekkt fyrir fallegar og áberandi flíkur þar sem rómantík mætir nútímalegri hönnun. Glæsilegar púffermar, skemmtileg mynstur, slaufur og einstök smáatriði einkenna línurnar, sem eru hannaðar fyrir konur sem elska að leika sér með tískuna og þora að vera þær sjálfar. Nafnið Crās kemur úr latínu og merkir „á morgun“, en hugmyndafræði merkisins hvetur konur til að njóta augnabliksins, tjá persónuleika sinn og klæðast því sem lætur þeim líða vel. Crās er fyrir konur sem elska falleg föt með karakter – þar sem kvenleiki, sjálfstraust og smá dass af glamúr fara saman.

Efnislýsing

100% Pólýester

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr