Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 20.000kr

Gloppa toppur rúllukraga

18,900 kr
Litur: Leopard
Stærð

Tilbúið til afhendingar í Síðumúli 21

Oftast tilbúið á 24 klst

Gloppa er aðsniðinn toppur í millisídd með síðum ermum og rúllukraga. Hann er með þröngum ermum og opinn á öxlumun. Efnið með góðri teygju. 

Stærðir

Gloppa kemur í 3 stærðum XS (hentar ca 36/38-40), S (42-44) og M (46-48/50).

Um vörumerkið

Volcano Design – íslensk hönnun með sögu Volcano Design er íslenskt hönnunarmerki sem varð til árið 2008 – og átti í raun bara að vera eitt sumar! Hugmyndin kviknaði hjá Kötlu Hreiðarsdóttur eftir nám í fatahönnun, visual merchandising og innanhússhönnun. Með gamla saumavél frá ömmu sinni og sterka tilfinningu fyrir því að það vantaði falleg, kvenleg og klæðileg föt fyrir fjölbreyttar konur, varð Volcano Design til. Fyrstu árin ferðaðist Katla með hönnunina um landið, hélt sölusýningar og byggði smám saman upp tryggan hóp viðskiptavina. Fljótlega kom eigin verslun og frá stofnun hafa Volcano-flíkurnar verið saumaðar á eigin saumastofu hér á Íslandi. Frá upphafi hefur áherslan verið á góð snið, þægindi, falleg efni og kvenlegar flíkur sem vinna með ólíkum líkamsgerðum. Framleiðslan hefur þróast í gegnum árin og færst að hluta út fyrir landsteinana, en hugsunin á bak við merkið er enn sú sama. Að hanna föt fyrir konur eins og þær eru – og föt sem þeim líður vel í. ❤️

Efnislýsing

Efnisblanda: 93% polyester 7%Spandex

Þvottaleiðbeiningar

Við mælum með 30°C þvotti, mælum ekki með að nota þurrkara.

Sendingarkostnaður

DROPP

Afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 890 kr
Afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 1.090 kr
Afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 1.090 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu 1.790 kr
Heimsending á Suðvesturhorninu frá 1.410 kr
Sótt í verslun, Síðumúla 21: frítt
Frí sending af pöntunum yfir 20.000 kr