Páskaratleikur 2026- styrkur fyrir Einstök börn
Páskaratleikur 2026- styrkur fyrir Einstök börn - 1500 er forpöntuð og verður send um leið og hún kemur aftur á lager.
ATH: Við kaup á þessari vöru skráist þú sjálfkrafa á póstlista Systur&Makar.
Með þessum kaupum ertu að styrkja Einstök börn og takk kærlega fyrir það!
Endilega munið að kíkja í spam ef hann kemur ekki beint í innhólf 😉
ATH að öll fyrirtæki sem styrkja með upphæðum 25.000 og hærra fá tilkynningu á Instagram síðu Systur&Makar þar sem fyrirtækið verður jafnframt merkt um sína þáttöku nema að annað sé tekið fram.
Þá er komið að páskaratleik ársins 2026!
Þetta er nú 6 skiptið sem ég útbý svona páskabraserí fyrir alla þá sem vilja en hingað til hef ég gefið hann alveg frítt. Það hafa þó ansi margir nefnt það við mig að vilja greiða fyrir hann. Svo eftir þónokkra umhugsun ákvað ég nú í ár að breyta til og bjóða greiðslu fyrir leikinn sem um leið styrkir gott málefni.
Upphæðin fer frá 500.- og uppúr en þú ræður hvort og hversu mikið þú vilt styrkja!
Í ár styrkjum við félagið Einstök börn.
Leikurinn:
Í ár samanstendur leikurinn af 7 nýjum vísbendingum með vísum og þrautum sem blanda má við leiki fyrri ára og eru því vísbendingarnar orðnar 38 talsins.
Leikir fyrri ára verða einnig sendir út en þar má meðal annars finna myndaratleik fyrir yngstu gormana, 30 spurninga páskaquiz og páskabingó, páskaeggjaorrustu og veglegan föndur- og þrautapakka sem veitir börnunum heilmikið að dunda við.
Leikurinn passar fyrir allan aldur og er hugmyndin að skemmta sem flestum, ungum sem öldnum og stuðla að samvinnu og gleði.
Þó leikurinn sé vissulega frír þá vona ég að í ár takist að safna svolítilli upphæð í þágu þessa verðuga málefnis.
Leikurinn verður sendur út á alla meðlimi póstlista fimmtudaginn 26. mars.
Eins er ég sérstaklega þakklát ef þið eruð til í að deila með mér myndum/videoum af undirbúningi og/eða frá leitardeginum sjálfum.. það veitir mér ómælda ánægju að sjá þetta gleðja ykkar nánustu!
Best er að merkja á Instagram undir myllumerkinu #systurogmakarpaskar eða tagga þar @systurogmakar nú eða senda myndir á facebook síðu Systur&Makar eða systurogmakar@gmail.com
Gleðilega páska og takk fyrir að styrkja Einstök börn.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr
