Left Halda áfram að versla
Pöntunin þín

Það eru engar vörur í körfunni

Viltu bæta við?
3.700 kr
2.900 kr

STÆRÐIRNAR OKKAR

Stærðir VOLCANO DESIGN eru svolítið öðruvísi en annarsstaðar en ástæðan fyrir þessu er að Katla valdi að útbúa sinn eigin stærðarskala.. því hún einfaldlega ræður þessu sjálf! Stærðirnar eru því hugsaðar útfrá Íslenskum konum og eru sem hér segir:

Stærð (36/38), XS (38/40) S (42/44) M (46/48) og XM (50/52/54)

Við gætum alveg eins kallað þetta bara „guðdómleg, dásamleg, yndisleg og frábær“ skiljiði, enda skipta stærðirnar engu máli.. þetta snýst um falleg snið, faglegt handbragð og að líða vel!

Nailberry

Drea James

Zarco Perfume

Um Volcano

ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA

Frá upphafi VOLCANO DESIGN hafa allar vörur merkisins verið framleiddar á Íslandi á eigin saumastofu. Það er ákveðið flækjustig og kostnaðarsamt en hefur um leið ótal kosti.

Hjá okkur starfa bæði menntaðir og ómenntaðir fagaðilar og skiptir það okkur miklu máli að ferlið á bakvið vöruna sé jákvætt, bjart og gott.

DEAD STOCK

Í ferli efna- og fataframleiðslu myndast oft lagerar sem sitja ónýttir og kallast þeir „Deadstock“. Við hjá VOLCANO DESIGN eigum það til að nýta okkur þennan efnakost og draga þannig úr landfyllingu. Þetta er ekki lausn á offramleiðsluvanda fataframleiðslunnar en þetta er þó umhverfisvænt og gengur hjá okkur þar sem framleiðslan er ekki í massavís né „fast fashion“.

ENDURNÝTING

Í sníðaferlinu falla til bútar sem ekki nýtast í hina eiginlegu vöruframleiðslu og þykir okkur bæði óskaplega gaman og mjög gefandi að nýta þessa afganga.

Þessar vörur taka jafnan mun lengri tíma í sníðslu sem og saum en ferlið er virkilega skemmtilegt og umhverfisvænt og varan verður svo sannarlega einstök því hver og ein endurunnin vara á sér enga sína líka.

★★★★★
Íslensk hönnun. Gott úrval, yndislegur húsbúnaður. Frábær föt fyrir fullvaxnar konur. Elska stílinn.
- Dagmar
★★★★★
Geggjað, styttu ermar og græja meðan fengum við kaffi og höfðum það gott
- Sigurður
★★★★★
Alltaf frábært að koma til þeirra
- Fríða
★★★★★
Mjög góð verslun með frábæra þjónustu.
- Þorsteinn