"Eins og að vera í smjöri"... ekki að ég hafi stundað það mikið að "klæðast" smjöri.. en ef ég væri að því gæti ég ímyndað mér að svona yrði tilfinningin. Einstaklega mjúkir peysubolir hér á ferð með fallegum háum kraga og fallegum prjónadetail að framan. Ermarnar eru einnig mjög skemmtilegar en þessi parast vel með blazer jökkum, hvers kyns buxum, girt eða þannig að hún liggi yfir og prjónið gefur henni hellings teygjanleika.
Blanda: 80% viscose, 20% polyamide
Stærðir: XS (34-36) S (38-40) M (40-42) L (42-44) XL (46-48) XXL (50-52) XXXL (54-56)
ZOSO er 15 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki frá Amsterdam. Merkið hefur vaxið hratt undanfarin ár og hefur sett sér það markmið að bjóða kvenfatnað sem sameinar gæði, þægindi og stílhreina hönnun. Fyrirtækið vinnur með birgjum og framleiðendum sem deila þeirra sýn á framtíðina og áhrif á umhverfið.
Vörur merkisins henta honum sem vilja daglegan lúxus, ekki of formlegt og fer auðveldlega á milli dag og kvöldnotkunnar. Einkenni ZOSO varanna eru teygjanleg efni, þægilegur og sportlegur fatnaður sem þó hentar einnig til fínni nota.
Vörumerkið býður upp á fjölbreytt vöruúrval og breitt stærðarval en um er að ræða 7 stærðir af hverri einustu vöru. ZOSO er einnig þekkt fyrir frábær gæði af "travel-efnum" sem er bæði einstaklega þægilegt efni og heldur sér mjög vel.