Myrka síðerma túrkis
Lýsing
Myrka er alveg ótrúlega töffaralegur en um leið kvenlegur. Hálsmálið fer í V og fellur á misvíxl yfir hvort annað. V hálsmálin lengja hálsinn og fara svo mörgum ótrúlega vel.
Hann er með síðum ermum og vösum og þar sem efnið er frekar gerðarlegt fá bæði axlir og mjaðmir sterkara útlit sem gerir það að verkum að mittið virkar enn minna á móti. "Leikur að andstæðum".
Pilsið er með góðum sniðsaumum að aftan svo það liggur slétt og fallega yfir rass og mjaðmir. Bakið er með svolítið meiri vídd sem felur allar brjóstahaldaralínur og hér að sama skapi er leikið með andstæður og mittið fær meira vægi.
Myrka kjóllinn er bundinn saman með bandi en hægt er að hafa slaufu að aftan eða lítinn hnút að framan. Mikilvægt er að nota beltisspælana svo að beltið haldist á réttum stað í mittinu.
Einnig kemur mjög vel út að binda beltið saman að framan í litla slaufu og nota kjólinn þannig sem vesti.
"Talandi um að geta farið beint úr vinnuvestinu í skvísulegan kjól á núll einni!".
Efnið er gerðarlegt og gott með lítilli teygju, hann helst því vel tignarlegur og skarpur "sharp".
Þessi hentar hvar og hvenær sem er!
Myrka kemur í 3 stærðum XS (hentar ca 36/38-40), S (40-42/44) og M (44-46/48).
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast forðist þurrkarann þar sem hann fer aldrei vel með flíkurnar.
Efnisblanda: 50% Polyester, 48% Viscose, 2% Elastine
Sendingarkostnaður
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr