Hringkragi ull nr 1, til styrktar Bleiku slaufunni
Lýsing
"Tiltekt með tilgang" er verkefni sem við hjá Volcano Design og Systur&Makar ákváðum að hrinda í gang en við vorum að taka til á saumastofunni okkar og vildum um leið láta gott af okkur leiða. Um er að ræða vörur sem eru framleiddar á Íslandi alfarið úr efnisafgöngum og afskurðum. Hér er því spornað við landfyllingu sem og ágóði af hverri seldri vöru rennur beint í styrktarsjóð bleiku slaufunnar.
Hringtreflarnir eru hlýir og góðir með snúning og liggja því vel við brjóstkassa en einnig er hægt er að snúa þeim upp í tvöfaldan trefil.
Þessir eru gerðir úr íslenskri ull.
Ágóði hverrar seldrar vöru rennur óskiptur til Bleiku Slaufunnar en við viljum nýta tækifærið og þakka Krabbameinsfélaginu fyrir óendanlegan dugnað í þágu þessa mikilvæga málefnis bæði í formi styrktarvinnu og fræðslu. Það er magnað að fylgjast með því starfi sem þið sinnið ár hvert af ástríðu og við erum stolt af því að fá að taka þátt í ár!
Vörurnar verður til sölu á meðan birgðir endast.
Sendingarkostnaður
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr