Left Halda áfram að versla
Pöntunin þín

Það eru engar vörur í körfunni

Viltu bæta við?
2.960 kr 3.700 kr
2.320 kr 2.900 kr

Esja Svört bleikblóma one size

17.340 kr 28.900 kr

Lýsing

Esja er ferlega skemmtilegur og sniðugur kjóll sem hægt er að breyta á nokkra vegu. 

Hægt er að hafa V hálsmálið að framan eða aftan og þá rúnað að framan eða aftan.

Hann er með böndum í hliðinni sem hægt er að binda saman á nokkra vegu:

Böndin er hægt að binda laust niður að framan og hafa hann svolítið hippalegan og lausan.

Einnig er hægt að binda böndin laust að aftan og láta þau lafa niður á rass, hann er einnig frekar þægilegur og "loose fit" þannig. Að lokum er hægt að þrengja hann og binda hann upp í mitti þannig að böndin endi að framan í hnút eða að aftan í hnút og mynda böndin þannig hálfgert belti. Það ýkir mittið en gefur þó hreyfingu í efri partinn og felur brjóstahaldaralínur.

Smart og virkilega klæðilegur kjóll með kvartermum og fallegri millisídd sem lítið mál er að dressa bæði upp og niður, para við hæla eða boots og nota hversdags eða virkilega spari!

Við erum alveg ótrúlega ánægð með útkomuna á þessu fallega en einfalda sniði.

Þessi kemur í einni stærð sem hentar mjög breiðum stærðarhóp frá 36/38-46/48

Við mælum með 30°C þvotti og forðist þurrkarann.

Blanda: 100%Polyester

ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com

Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.

Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.