Left Halda áfram að versla
Pöntunin þín

Það eru engar vörur í körfunni

Viltu bæta við?
3.700 kr
2.900 kr

Skutla svört

39.900 kr

Lýsing

Skutla er opin jakkapeysa með vösum í sem falla niður í hliðarstykkin og tvöföldum kraga sem bæði er hægt að hafa opinn með broti eða láta liggja lausan yfir að framan til að ná betri lokun..

Þessa væri líka smart að nota með belti!

Ótrúlega klæðilegar og tímalausar opnar jakkapeysur eða gollur sem eru frábærar við allskonar kjóla og toppa. Þær ná niður fyrir hné og eru með vel síðum ermum sem krumpast aðeins fremst.

Skutlurnar eru aðsniðnar í mittinu sem gerir þær mjög dömulegar og töff!

Þær henta sem utanyfirflíkur í léttara veðri en munu einnig koma sér mjög vel í vetur þegar það fer að kólna. 

Ermarnar eru ísettar og eru því axlirnar skarpar og flottar.

Þær eru fáanlegar fjórum stærðum: XS sem hentar 36/38-40, stærð S 40-42-44, stærð M 44-46/48 og stærð XM 48/50

Við mælum með 30°C þvotti og hengið upp til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.

Blanda: 69%Nylon/26%Rayon/5%Spdx

ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com

Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.

Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.


Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr