Left Halda áfram að versla
Pöntunin þín

Það eru engar vörur í körfunni

Viltu bæta við?
3.700 kr
2.900 kr

Letingja- knit Svört

36.900 kr

Lýsing

Letingja peysurnar okkar heita þessu skemmtilega nafni vegna þess að stundum nennir maður ekki að hafa mikið fyrir því að líta frambærilega út. Þá kemur þessi flík sterk inn, einfaldlega smella henni yfir dressið, hún er sérstaklega þægileg og þú ert klár í slaginn á núll einni, yndislegt!

Letingja peysurnar eru eiginlega peysukápur sem henta sem utanyfirflíkur í léttara veðri en henta einnig vel í kaldara veðri utanyfir aðrar peysur eða með hlýjum klútum. Þær eru klassískar og tímalausar í sniðinu með svolítið lausum ermum, opnar að framan með kanti sem rammar hálsmálið og vösum í hlið.

Ermarnar eru með laska sniði svo þær liggja vel við öxlina og síddin er góð við ýmsa kjóla, skokka og buxur.

Letingja peysurnar eru fáanlegar þremur stærðum: XS sem hentar 36/38-40, stærð S 40-42-44 og stærð M 44-46/48.

Ég er í stærð S á mynd og er stærð 44 og 173cm á hæð.

Við mælum með 30°C þvotti og hengið upp til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.

Blanda: 50% Rayon, 25% nylon, 25% Polyester

Sendingarkostnaður

DROPP

Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr