Ufsi toppur svartur
15.750 kr
22.500 kr
Lýsing
Ufsi er dásamlega mjúkur rúllukragabolur úr hágæða OEKO TEX* viðurkenndu bómullarefni sem er bæði einstaklega mjúkt og gerðarlegt. Kraginn er hár og fer út í eitt við búkstykkið en hann er hægt að brjóta niður eða láta krumpast um hálsinn.
Ufsi er vel síðerma og nær niður á miðjar mjaðmir. Þessi er algjört möst í fataskápinn og fer svo vel við buxur, innanundir skokka, við síðar peysur og kápur og er hlýr og fínn í kulda.
Hann er fáanlegur í XS (36/38-40) S (40/42-44) M (44-46)
Ég er í stærð S á mynd og nota 44
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast forðist þurrkarann.
Blanda: 95% Organic Cotton 5%Spandex OREKO TEX CERTIFIED