Skyrtukjóll Svartur crepe m hnút

29.900 kr

Þessi dásamlega fallegi skyrtukjóll er fljótt að verða einn af okkar uppáhalds frá byrjun! Hann er með A sniði og fellur út í góða vídd í hliðunum. Hann er með svolítinn kraga og V hálsmáli, með saum sem fer niður og endar þar í klauf. 

Spíssana tvo í endanum að framan er hægt að binda í hnút og gera hann þannig skemmtilega öðruvísi. Þá myndast svolitlar rykkingar neðst sem er ferlega smart!

Einnig er hægt að hafa hann bara lausan niður og er hann þá enn klassískari en ella en fallegt er að ýkja mittið með því að nota við hann belti.

Hann er með vösum í hlið og fallegu broti í bakinu sem gerir hann sérstaklega sætan og felur svolítið brjóstahaldaralínur. Ermarnar eru síðar með svolítilli vídd og teygju fremst.

Klæðilegur kjóll úr dásamlega fallegu föstu efni, þessi er dásemd!

Hann fæst í 3 stærðum: XS (hentar ca 36/38-40), S (42-44/46) og M (46/48-50)

Við mælum með 30°C þvotti og forðist þurrkarann.

Blanda: 100% polyester

ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com

Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.

Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.

Tengdar vörur

Sjá allt
Leggings mattar
Leggings mattar
12.900 kr
20%
Skjól navy blátt
Útsala
Skjól navy blátt
Frá 3.120 kr 3.900 kr
Skjól svart
Skjól svart
Frá 3.900 kr
Júlía twist svartar mattar
Skutla svört
Skutla svört
32.500 kr
Leggings mattar/riff
Left Versla áfram
Þín pöntun

Karfan þín er tóm