Rut er aðsniðinn toppur með fallegu V hálsmáli.
Hann er með púff ermum með meiri vídd yfir upphandleggi og þrengjast svo ermarnar niður að úlnlið. Hann liggur vel við kroppinn og sýnir fallegar kvenlegar línur, en hann er samt alls ekki níðþröngur. Sniðugur og klassískur toppur sem bæði er fallegt að girða ofan í buxur/pils eða hafa yfir.
Fáanlegur í XS (36/38-40) S (40/42-44) M (44-46/48)
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast forðist þurrkarann.
Blanda:90% Rayon bambus og 10% elastine.
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com
Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.
Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.