{"product_id":"ok-butakragi-134","title":"OK bútakragi 132","description":"\u003cp\u003eOk bútakragi, fastir bútar þeas ekki prjón. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHugmyndin að \"OKi\" á móðir mín; Fríða, en hún er stórmerkileg uppspretta hugmynda og pælinga sem er magnað að fá að taka þátt í. Hún hringdi í mig stuttu eftir að fréttir bárust um að fyrsti íslenski jökullinn væri nú horfinn sökum loftslagsbreytinga og hvatti mig til að gera eitthvað til minningar um hann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEftir svolitla umræðu þótti okkur gáfulegast að gera það þá vöru úr einhverju sem hefði sama sem engin áhrif á umhverfið og landfyllingu. Það þýðir að OK er að öllu leiti gert úr afgangs bútum og efnum sem annars væru ekki notuð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEins þótti mér sniðugt að þetta væri eitthvað hlýtt, \"hlýnun jarðar og jökull\" það var eiginlega ekkert annað sem kom til greina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚr varð því einskonar búta hulsa eða hálskragi sem einnig er hægt að nota sem sjal með því að draga það aðeins niður á axlir. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFöstu kragarnir fara reyndar ekki niður á axlir enda engin teygja í þeim, heldur liggja þér á öxlunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð því að nýta bútana þá þýðir það jú að engir tveir \"OK\" eru eins, hver og einn er einstakur, alveg eins og jöklarnir sem fara nú hverfandi...\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eHlýtt, praktískt og unnið úr efnisafskurðum og afgöngum!\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eÞess má geta að mamma á líka heiðurinn af flestum nöfnum á flíkunum mínum enda er hún gangandi orðabók og viskubrunnur!\u003c\/p\u003e","brand":"Volcano Design","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45506511798342,"sku":null,"price":19900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0740\/6697\/files\/9AA1FCFC-459B-4C84-862E-23D0861A23BF.jpg?v=1784129421","url":"https:\/\/systurogmakar.is\/products\/ok-butakragi-134","provider":"Systur\u0026Makar","version":"1.0","type":"link"}