Myrka kjóll pleður Cappucchino
Lýsing
Myrka er alveg ótrúlega töffaralegur en um leið kvenlegur wrap kjóll. Hálsmálið fer í V og fellur á misvíxl yfir hvort annað. V hálsmálin lengja hálsinn og fara svo mörgum ótrúlega vel.
Hann er með síðum ermum sem eru þó ekki of þröngar. Axlirnar fá sérstaklega mikið vægi með brotum og púffi sem ýkja og gefa meiri vídd og hreyfingu bæði að framan og aftan. Svo er hann með vösum í hlið og þar sem efnið er frekar gerðarlegt fá bæði axlir og mjaðmir sterkara útlit sem gerir það að verkum að mittið virkar enn minna á móti. "Leikur að andstæðum".
Pilsið er með góðum sniðsaumum að aftan svo það liggur slétt og fallega yfir rass og mjaðmir. Bakið er með svolítið meiri vídd sem felur allar brjóstahaldaralínur og hér að sama skapi er leikið með andstæður og mittið fær meira vægi. Einnig eru litlar follur að framan sem gefa hreyfingu og vídd yfir magasvæði.
Myrka kjóllinn er bundinn saman með bandi en hægt er að hafa slaufu að aftan eða lítinn hnút að framan.
Efnið er mjúkt og gott með teygju, hann helst vel tignarlegur er einstaklega þægilegur og dömulegur.
Þessi hentar hvar og hvenær sem er!
Myrka kemur í XS (hentar ca 36/38-40), S (40-42/44) og M (44-46/48).
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast forðist þurrkarann þar sem hann fer aldrei vel með flíkurnar.
Efnisblanda: 95% Polyester, 5% Elastine
Sendingarkostnaður
FRÍ SENDING AF ÖLLUM PÖNTUNUM YFIR 20.000KR
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 900 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 900 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr
Pósturinn
Pakki rekjanlegur á pósthús eða póstbox á höfuðborgarsvæðinu 990 kr
Pakki rekjanlegur sendur heim á höfuðborgarsvæðinu 1.290 kr
Pakki rekjanlegur á pósthús eða póstbox á landsbyggðinni 1.150 kr
Pakki rekjanlegur sendur heim á landsbyggðinni 1.590 kr