Marlene kjólarnir eru unnir út frá Marlene samfestingunum sem hafa lengi verið mjög vinsælir hjá okkur. Þeir eru dásamlega klæðilegir með síðum ermum, framstykkjum sem falla hvort yfir annað og mynda fallegt V-hálsmál.
Eins er teygja og rykking í mittinu og örlítil vídd sem felur svolítið magasvæðið en ýkir um leið mittið, hann er líka með vasa í hlið. Efnið er teygjanlegt og þungt sem fellur vel!
Pilsið nær niður á ökkla en það er auðvitað auðvelt að stytta ef fólk vill en hann lengir og heldur vel um kvenlegar línurnar!
Þetta er klassísk og tímalaus flík sem myndi sóma sér vel í hvaða skáp sem er!
Marlene kjólarnir koma í 3 stærðum: XS (hentar ca 36/38-40), S (40-42/44) og M (44-46/48)
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast ekki nota þurrkara. Eins bendum við á að nota ekki gróf hálsmen eða annað sem gæti rifið upp efnið og látið það byrja að hnökra.
Efnisblanda: 92% Polyester, 8% Spandex.
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com
Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.
Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.