Mar er einn elsti en jafnframt klassískasti kjóllinn okkar. Hann hefur komið í heilmörgum útgáfum úr mismunandi efnum, með og án prenta.
Mar er léttur og ótrúlega þægilegur kjóll sem margar elska að skella yfir sig til að verða "ready" á núll einni. Hann er flottur við leggings eða utanyfir þröngar buxur.
Hálsmálið er vítt en ekki mjög flegið og stroffin ná upp á miðjan handlegg, hann er sumsé víður, en ekki of víður...
Þessi er með blúnduskurði á öxlunum sem gefur kjólnum fallega rómantískan blæ og hentar hann sem frábær grunnur fyrir margskonar skart og klúta.
Mar er fáanlegur í tveimur stærðum XS (hentar stærðum 36/38-40) og S (hentar stærðum 40/42-44/46)
Við mælum með 30°C þvotti á þessum
Efnisblanda: 92% viscose 8% elastin.