Lýsupeysurnar eru skemmtilega einfaldar stuttar peysur með klaufum í hlið. Þær eru með síðum ermum sem eru skáskornar á efnið sem gefur þeim fallegt tvist og léttan kraga sem auðvelt er að brjóta niður.
Bakstykkið er svolítið síðara sem gerir þær smart girtar aðeins ofan í strenginn að framan.
Notalegar peysur sem eru algjörlega tímalausar!
Lýsa er fáanleg í XS (henta 36/38-40/42) S (40/42-44/46) og M (44/46-48/50)
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast ekki nota þurrkara.
Blanda: 49%Rayon, 27% nylon, 21% polyester, 3% spandex
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com