Lokkarnir sem setja punktinn yfir i-ið eru mættir á staðinn. Þessir lokkar toppa alveg dressið og kalla á athyglina.
Lokkarnir eru hannaðir af Jenn Cook sem er með merkið Drea James Designs.
Eyrnalokkarnir hennar samanstanda af endurunnu skarti, tilfinningu og skapandi hugsun sem gerir það að verkum að hvert par er einstakt, og bara til eitt af hverri gerð.