Fífa skyrta ljós mynstruð
Lýsing
Þessi fallega skyrta er ferlega sniðug í sniðinu og virkilega flatterandi. Sæt við gallabuxur eða sparibuxur/pils og einfalt að klæði upp í spari eða hversdags. Hún er með A sniði og fellur út í svolítið meiri vídd í hliðunum með örlítið meiri sídd að aftan. Skyrtan er með bandi í hálsmálinu sem hægt er að binda upp í þrönga eða lausa slaufu eða láta lafa.
Okkur finnst einstaklega smart að girða hana svolítið ofan í strenginn að framan en einnig er hægt að hafa hana bara lausa niður.
Ermarnar eru síðar með töluverðri vídd fremst og eru þær teknar saman í rykkingu.
Klæðileg skyrta úr dásamlega fallegu föstu og léttu efni, þessi er dásemd!
Hann fæst í 3 stærðum: XS (hentar ca 36/38-40), S (40-42/44) og M (44-46/48)
Við mælum með 30°C þvotti og forðist þurrkarann.
Blanda: 98%Polyester/2%Spandex
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com
Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.
Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.
Sendingarkostnaður
FRÍ SENDING AF ÖLLUM PÖNTUNUM YFIR 25.000KR
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 900 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 900 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr
Pósturinn
Verð reiknast skv. verðskrá póstsins.