Drífu jakkapeysurnar eru opnar oversize gollur með töffaralegum saum sem fer þvert yfir bakið.
Þær henta sem utanyfirflíkur í léttara veðri en munu einnig koma sér mjög vel í vetur þegar það fer að kólna. Þær eru frekar lausar og stórar með svolítið víðum ermum, opnar að framan með kanti sem rammar hálsmálið og vösum í hlið sem er alltaf gott að hafa.
Ermarnar eru með laska sniði sem gerir það að verkum að þær liggja vel við öxlina og síddin er góð við ýmsa kjóla, skokka og buxur.
Eir jakkapeysurnar eru fáanlegar þremur stærðum: XS sem hentar 36/38-40/42 stærð S 42/44- 46 og stærð M 46/48-50/52
Við mælum með 30°C þvotti og hengið upp til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.
Blanda: 100%Polyester
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com
Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.
Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.