Dimma kjóll grár
Lýsing
Dimma er fallegur og töffaralegur en um leið kvenlegur wrap kjóll. Hálsmálið fer í V og fellur á misvíxl yfir hvort annað. V hálsmálin lengja hálsinn og fara svo mörgum ótrúlega vel.
Hann er með síðum ermum með svolitlu púffi öxlunum sem eru þó ekki of þröngar. Hann er með vösum í hlið og þar sem efnið er frekar gerðarlegt fá bæði axlir og mjaðmir sterkara útlit sem gerir það að verkum að mittið virkar enn minna á móti. "Leikur að andstæðum".
Pilsið er með góðum sniðsaumum að aftan svo það liggur slétt og fallega yfir rass og mjaðmir. Bakið er með svolítið meiri vídd sem felur allar brjóstahaldaralínur og hér að sama skapi er leikið með andstæður og mittið fær meira vægi.
Hann er bundinn saman með bandi en hægt er að hafa slaufu að aftan eða bundið í hnút að framan.
Einnig kemur mjög vel út að binda beltið saman að framan í litla slaufu og nota kjólinn þannig sem gollu.
"Talandi um að geta farið beint úr vinnuvestinu í skvísulegan kjól á núll einni!".
Efnið er gerðarlegt og gott með teygju, hann helst vel tignarlegur er einstaklega þægilegur og dömulegur.
Dimma kemur í 3 stærðum XS (hentar ca 36/38-40), S (40-42/44) og M (44-46/48).
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast forðist þurrkarann þar sem hann fer aldrei vel með flíkurnar.
Efnisblanda: 95% Polyester, 5% Elastine
Sendingarkostnaður
FRÍ SENDING AF ÖLLUM PÖNTUNUM YFIR 20.000KR
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 900 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 900 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr
Pósturinn
Pakki rekjanlegur á pósthús eða póstbox á höfuðborgarsvæðinu 990 kr
Pakki rekjanlegur sendur heim á höfuðborgarsvæðinu 1.290 kr
Pakki rekjanlegur á pósthús eða póstbox á landsbyggðinni 1.150 kr
Pakki rekjanlegur sendur heim á landsbyggðinni 1.590 kr