Blúndu bomber jakkarnir okkar eru DA BOMB! Við bókstaflega elskum þessa töffara!
Þeir eru með fallegum lágum kraga, ná niður í mitti með stroffi neðst sem dregur þá aðeins saman sem og framan á ermum. Með vösum í hlið og smelltir með svörtum jakkasmellum.
Frágangurinn er fallegur og þeir eru fóðraðir, sniðið er klæðilegt og svolítið "oversize" með ísettum ermum en aðalmálið er geggjaða efnið í þeim! Blúnda með leðurlíkisáferð.
Þeir eru fáanlegir í XS (36/38-40), S (40/42-44/46) M (46/48-50/52)
Ég er í stærð S á mynd og nota 44
Við mælum með því að fara með þessa í hreinsun eða skola létt á ullarprógrammi og leggja eða hengja til þerris.