Barnanistin eru persónuleg og skemmtileg gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um. Um er að ræða fallegt og fínlegt nisti sem er á stuttri nikkelfrírri keðju en menið liggur á viðbeininu. Keðja um 40 cm og hentar vel á börn.
Stafurinn er hress og skreyttur með blómsveig í fallegum lit.
Við hliðina á stafnum hangir lítið glingur, fiðrildi eða blóm.
Falleg gjöf sem gleður hvern sem er!